Fyrir langa löngu setti ég myndasafnið mitt á flickr. Það var í árdaga þess vefs sem var í raun einn af fyrstu samfélagsmiðlunum. Á endanum taldi safnið rúmlega 27000 myndir. Svo urðu verkfærin sem fylgdu tölvu og símum betri og betri og flickr breyttist lítið og ég hætti að nota það.
Núna er ég að prófa mig áfram með að flytja þær myndir og síðar nokkrar til viðbótar í Immich sem er ný lausn sem ég hýsi sjálfur. Í þessu verkefni mætast grúsk í tæknilausnum og minningum. Það er ekkert leiðinlegt.
