Haustið er tími litanna í sveitinni. Líka í vínekrunum sem eru svolítið rýrar þessa dagana. Berin hafa verið týnd og eru komin í hús og kannski í gerjum. Eftir standa runnarnir sem eftir skamma stund leggjast í vetrardvala og láta svo um sig muna taka næsta vor og sumar þegar sólin vermir hlíðarnar á ný. Það er hringrás lífsins.



