Um mig

Fyrir margt löngu bloggaði ég á annáll.is. Lénið er enn til en bloggið er horfið. Þetta var í árdaga bloggs á Íslandi þegar íslenska orðið hafði ekki einu sinni rutt sér til rúms.

Þessa dagana skrifa ég meira á ensku en íslensku, en ég sakna bloggsins. Sakna þess að ydda texta á móðurmálinu. Þetta verður vettvangur fyrir það.

Ég lofa engu um það hversu iðinn ég verð við kolann, það leiðir tíminn einn í ljós.

Hver er ég? Prestur, guðfræðingur og sitthvað fleira; eiginmaður og faðir, alinn upp í Reykjavík og norður í landi og el nú manninn á meginlandi Evrópu þar sem ég nýt fagrar fjallasýnar og fersks fjallalofts.

En hver er ég? Fylgstu með og þú kemst að því.