• Hjólað á hálendinu

    Hetjurnar sem hjóluðu rúma 300 kílómetra á hálendinu um helgina eru magnaðar.

  • Kýr, geitur, kindur

    Á íslenskum afrétti gætir þú mætt kindum með lömb. Á svissneskri heiði heyrir þú í kúnum áður en þú sérð þær. Og svo gætir þú mætt nokkrum forvitnum geitum.

  • Von um vetrarlok

    Vorið er á næsta leiti en upp til fjalla er enn vetur. Í gær gekk ég með samstarfsfólki inn í Júrafjöllin frá La Givrine. Snjórinn bráðnar hratt og trén voru í senn upplifun fyrir augu og eyru.

  • Upphaf

    Öskudagur markar upphaf föstu. Þessi markar líka nýja stefnu þessa bloggs. Nú, á íslensku. Ég hef saknað þess að ydda texta á móðurmálinu og ætla að nýta þennan vettvang. Útlitið minnir á gamla annálinn. Titillinn líka.